High in the highlands

The Eimskip Calender

The Bank of Iceland Calender

The ESSÓ calender

Jeep travels in the snow

Links

Arctic Books

Exhibition in Gerdarsafn

 

Nokkrar myndir frá vetrarferðum á jeppum.

Á veturna er allra veðra von og eins gott að vera við öllu búinn, vandræðin gera ekki boð á undan sér. Erfiðleikar gera þó í flestum tilfellum ferðina bara skemmtilegri og eftirminnilegri.

Hér á eftir koma nokkrar myndir í belg og biðu til þess að gefa innsýn í ferðalög á fjöllum.
Hægt er að smella á þær til að sjá þær stærri á skjánum.

Sumstaðar eru ár og lækir undir snjónum sem myndar veika þekju yfir.Oft brestur undan fyrsta bíl og getur staðan litið illa út.

Í best útbúnu jeppum í dag eru bæði gerfihnattar GPS tæki og fartölvur sem taka gögnin frá GPS-inum og reikna út á landakorti á skjánum staðsetningu bílsins með undaraverðri nákvæmni.Farsímar og talstöðvar eru nauðsynleg öryggistæki sem enginn skildi fara á fjöll án.

Um leið og eitthvað krassandi skeður er myndavelin það fyrsta sem menn draga upp og munda fimlega. Hliðarhalli getur litið skelfilga út en í þessu tilfelli brotnaði ís yfir Jökulgilskvíslina undan framhjóli Toyotunnar.
Við ár eru víða háar skarir sem geta verið varasamar.
Þegar ís brotnar undan framhjóli dettur bíllinn niður að framan en lyftist upp að aftan, þá getur verið ansi hátt að hoppa niður.
4 saman á Langjökli
Oft sést ekkert nema hvítt út um gluggann , en hér sést vel til Skjald-breiðar.